Microsoft í skólum
Minecraft námskeið 5. og 6. október 2017
Námskeið fyrir kennara sem sérfræðingar frá Dansk Arkitektur Center halda. Sömu aðilar bjóða upp á námskeiðið Byggjum draumaborgina með Minecraft fyrir börn í Norræna húsinu laugardaginn 7. október.
Hver: Mira Valentina Krogstrup frá Dansk Arkitektur Center
Hvenær: Fimmtudaginn 5. október 2017, kl. 15-18 eða föstudagur 6. október kl. 15-18
Hvar: Háaleitisskóli - Hvassaleiti - Stóragerði 11, 108 Reykjavík.
Tölvur á staðnum.
Léttar veitingar í boði.
Vinsamlegast skráið ykkur hér til þátttöku.
Nýtt vefnámskeið - MakeCode fyrir micro:bit
10 leiðir til að nota Onenote í kennslu
Hún, eins og fleiri, mælir með því að kennarar noti Onenote 2016 sem er langbesta útgáfan af Onenote. Hún mælir einnig með því að kennarar:
geri to-do lista fyrir daginn og/eða vikuna
setji liti á síður og jafnvel línur ef þess þarf
setji inn skjöl, ýmist sem viðhengi eða 'print-out'
tileinki sér 'digital inking' með því að skrifa beint á skjáinn
haldi utan um greinar og vefsíður
noti Onenote clipper
tileinki sér notkun sniðmáta (e: template)
tali inn minnispunkta með því að taka upp hljóð
taki upp myndbönd og geymi í Onenote
setji upp og haldi utan um kennsluáætlanir
Innleiðing Office 365 í Menntaskólann að Laugarvatni
Léttskýjað og skyggni gott að Laugarvatni.
Innleiðing Office 365 í Menntaskólann að Laugarvatni.
Menntaskólinn að Laugarvatni (ML) er framhaldsskóli með um 150 nemendur.  Skólinn er heimavistarskóli og búa flestir nemenda á heimavist skólans.  Húsnæði skólans er því bæði heimili og vinnustaður þessara 150 nemenda og þarf því að uppfylla nútíma kröfur samfélagsins.
ML hefur verið þátttakandi í skýjaþjónustu Microsoft frá því að hún ruddi sér til rúms eða frá um 2007.  Þá hét hún Live@edu og bauð aðallega uppá að hýsa tölvupóst í skýinu, í kringum árið 2010 breyttist nafn þjónustunnar í Office 365 (O365) og skólinn var stuttu síðar fluttur í nýju þjónustuna.  Vorið 2016 var skólinn svo fluttur í nýjustu útgáfu O365 og eftir það hefur notkun þjónustunnar aukist til muna.
Haustið 2014 var undirrituð ráðin sem verkefnastjóri við skólann í 50% stöðu og er mitt hlutverk m.a að aðstoða kennara og nemendur við innleiðingu og notkun á tölvutækninni og þar með talið O365.  Haustið 2016 hóf ég þátttöku í MIE Expert verkefninu hjá Microsoft.  Þar fæ ég fyrstu fréttir af nýjungum hjá Microsoft og get einnig miðlað og fengið aðstoð við það sem helst brennur á í hvert skiptið.
Innleiðing á kerfi eins og O365 tekur tíma og höfum við tekið nokkur örugg en ákveðin skref.  Á fyrstu árunum var aðeins um að ræða að nota tölvupóst sem var á netinu og því aðgengilegur hvar og hvenær sem er. Næsta skref var að fá nemendur til að nýta sér sinn tölvupóst og Onedrive til gagnageymslu.
Nemendur og starfsfólk hafa allir aðgang að sínu @ml.is netfangi og geta því notað O365 online, en einnig er skólinn með Microsoft skólasamning sem gerir það að verkum að hægt er að bjóða uppá Office pakkan í persónulegar tölvur nemenda og starfsfólks.
Helstu verkfæri sem við notum hér í ML eru Onenote og Onenote Class Notebook bókin.  Einnig hafa nemendur og kennarar nýtt sér Sway og Office Mix til að setja fram efni og auðvitað eru gömlu góðu Office forritin eins og Word, Excel, PowerPoint og Outlook í stöðugri notkun.  Onedrive er í almennri notkun bæði hjá nemendum og kennurum og einnig er komið dágott safn kennslumyndbanda inná Video svæði skólans sem er aðgengilegt nemendum til fróðleiks og ýtarefnis.
Önnur verkfæri sem kennarar eru að kynna sér eru t.d. Planner sem er tæki til að halda utanum skipulag og Forms sem er tæki til að búa til kannanir og próf.
Á haustdögum 2016 hélt ég námskeið eða kynningu á þeim verkfærum sem voru þá komin inn í O365, kennarar fengu hugmyndir og mátuðu þær í sína kennslu.   Í framhaldi hef ég svo aðstoðað þá við að innleiða þá hluti sem þeir vilja nota í kennslunni og tileinka sér ný vinnubrögð með O365.
Onenote og Onenote Class Notebook
Dæmi um notkun á Onenote og Onenote Class Notebook er t.d. hjá líffræðikennaranum sem nýtir sér alla möguleika Onenote Class Notebook í sinni kennslu.  Hann er með Onenote Class Notebook bók fyrir hvern áfanga þar sem hann deilir út verkefnum og nýtir sér einnig Onenote Class Notebook viðbótina í Onenote til að fara yfir verkefni og skrifa endurgjöf til nemenda.  Núna á vordögum mun hann nýta sér kennslukerfið Microsoft Classroom og tengja þar saman þessi tvö spennandi verkfæri.
Annað dæmi um notkun Onenote Class Notebook, kennari setur nemendum fyrir skiladæmi í stærðfræði og eðlisfræði, nemendur vinna verkefnið í tölvunni eða á blað, en taka þá mynd af úrlausn og setja inní Onenote Class Notebook verkefnaskilin sín.
Það má segja að Onenote hefur haft mestu áhrifin á kennslu og samskiptum við nemendur núna uppá síðkastið og er það verkfæri sem kennarar eru hrifnastir af og eru flestir þeirra að nýta sér Onenote á einn eða annan hátt.
Sway
Dæmi um notkun á Sway í kennslu er t.d. að kennari setur fram efni sem hann þarf að koma á framfæri í Sway og sendir nemendum tengilinn eða setur hann inn í Onenote bekkjarbókina.
Annað dæmi um notkun á Sway er að kennari býður nemendum uppá að skila verkefni í formi Sway kynningar.  Nemendur eru mjög fljótir að tileinka sér nýja hluti og þau voru fljót að sjá kosti Sway til framsetningar á efni.
Office Mix og Video svæðið
Office Mix viðbótin í PowerPoint og O365 Video eru kjörin verkfæri fyrir þá kennara sem vilja t.d. nýta sér vendikennslu.  Dæmi um notkun á því hér í ML er að kennari tekur upp fyrirlestra í eðlisfræði í Office Mix og vistar svo kennslumyndböndin á Video svæðinu þar sem nemendur geta skoðað þau hvenær sem er.  Viðkomandi kennari notar einnig iPad við vinnu en Office Mix mun verða aðgengilegt í öllum PowerPoint forritum í framtíðinni og mun þá einnig verða aðgengilegt í iOS og Android tækjum.
Video svæðið er notað til verkefnaskila í ýmsum áföngum þar sem auðvelt er að stjórna réttindum og myndböndin bara aðgengileg t.d. nemendum og kennurum eða einstaklingum, ekki öllum heiminum.
Annað dæmi um nýtingu á videó svæðinu er að íslenskukennarinn er með kvikmyndaverkefni þar sem nemendur taka sig upp og gagnrýna sig á upptökunni.  Það er kjörið að skila verkefninu á O365 video svæðið þar sem aðeins viðkomandi nemandi og kennari hafa aðgang að því.
Haustið 2016 settum við aukinn kraft í innleiðinguna með kynningu og fræðslu en síðan þá hefur margt þróast og bæst við.  O365 er í mikilli þróun og það er gaman að sjá hversu mörg verkfæri eru nú komin í almenna notkun.  Við lítum fram veginn og bíðum spennt eftir því sem koma skal og erum núna tilbúin til að taka á móti nýjungum um leið og þær koma.
Elín Jóna Traustadóttir | Dipl. Ed og MCP
Padlet + Sway
Nú er loksins hægt að fella inn (e: embed) padletsíðu inn í Sway-skjal og þannig búa til gagnvirka kynningu fyrir nemendur sem þeir geta sett efni inn á. Til að fella inn padlet síðu í Sway-skjal er smellt á share > share/export/embed > Embed in your blog or your website > copy (undir copy and paste this code in the text editor of your blog or HTML of your website) efst hægra megin á padlet síðunni ykkar.
Við hvetjum kennara til að prófa þennan fídus og deila með öðrum t.d. gegnum facebook-hóp Microsoft í kennslu
10 #Hacktheclassroom ábendingar fyrir kennara
Við mælum sérstaklega með því að kennarar nái sér í Office Lens og noti Onenote Class Notebook til að koma efni til nemenda sinna.
Holidays around the World
Holidays around the World er skemmtilegt dæmi um það hvernig hægt er að opna veggi kennslustofunnar og nýta sér tæknina til að innleiða nýja kennsluhætti. Við hvetjum kennara til að fylgja Beverly og bekknum hennar á twitter þar sem þau eru mjög dugleg að láta heiminn vita af því sem þau eru að gera hverju sinni:
https://twitter.com/beverly_ladd/status/809781199765905412
https://twitter.com/beverly_ladd/status/809757348654882817
Yfirlit verkfæra í Office 365
Einnig hægt að nálgast myndinga hér
Office 365 í Grunnskóla Þorlákshafnar - reynslusaga
Ég kynntist Office 365 kerfinu fyrst haustið 2015 - 2016 þegar starfsmenn TRS á Selfossi, sem þjónusta okkur, héldu fyrir okkur kynningu á möguleikum kerfisins sem og þeim tækifærum sem skýalausnir bjóða upp á. Hægt og rólega byrjaði þetta að gerjast hjá manni og við í Grunnskólanum í Þorlákshöfn fórum að sjá tækifærin í þessu og kasta hugmyndum okkar á milli án þess þó að byrja að nýta þetta strax neitt af viti. Á miðju skólaári í fyrra var ég svo heppinn að kynnast Ingvari Ágústi Ingvarssyni hjá Microsoft á Íslandi og kom hann með þá hugmynd að ég myndi sækja um að gerast Microsoft Innovative Educator Expert (MIE Expert) sem gaf mér tækifæri á að kynnast Microsoft forritum ítarlega og kenna öðrum það sem ég er að læra. Með því má segja að við höfum komist á næsta stig.
[caption id="attachment_405" align="alignright" width="300"] Skrifborðið mitt á góðum degi fyrir Office 365 innleiðingu. Ekki mjög umhverfisvænt né þægilegt í tösku á bakinu á leiðinni heim eftir góðan vinnudag.[/caption]
Nú með haustinu vorum við nokkur í skólanum farin að nota Onenote forritið, sem er gagnvirk glósubók, mikið í okkar vinnu. Ég nota það sjálfur til að halda utan um allt mitt skipulag, bæði persónulega sem og í vinnunni. Ég er með vikuáætlanirnar mínar í einni möppu sem ég tengi með tenglum yfir í aðrar möppur eða jafnvel aðrar glósubækur sem innihalda ítarlegri lýsingu á kennsluskipulaginu. Þessi nýung hefur hjálpað mér mikið í mínu skipulagi, sparað mér tíma og dregið verulega úr pappírsnotkun á vinnustaðnum sem styður við umhverfisstefnu skólans sem er jú grænfána skóli.
Byltingin hófst þó ekki af viti fyrr en við kynntumst Onenote class notebook sem er viðbót hjá Microsoft hugsuð til að halda utan um glósur og vinnu hjá heilum bekk. Ég verð að viðurkenna að þegar ég stofnaði glósubókina fyrir fyrsta bekkinn minn bjóst ég við því sama og hefur gerst hjá mér með margar álíka nýjungar, þ.e. að þetta myndi líta vel út í byrjun en fjara út eins og svo margt annað. Raunin varð þó önnur. Eftir því sem líður á notum við þessar glósubækur meira og meira og ef ég fengi að ráða og tækjakostur væri eins og best verður á kosið myndi ég nota Onenote í flest öll þau verkefni sem ég og nemendur mínir vinnum að.
Mig langar að lista nokkur dæmi um það hvernig ég nota Onenote en þessi listi er langt frá því að vera tæmandi:
1. Talnatal í stærðfræði
Talnatal gengur út á það að nemendur leysa ákveðið verkefni á töflunni (sem ég hef fyrirfram sett upp í Onenote) í huganum og gefa kennara hóflega til kynna þegar þeir eru komnir með lausnina. Þegar flestir eða allir hafa gefið merki fá nemendur að segja lausnina og best er að fá sem flestar lausnir þó einungis ein þeirra sé rétt. Næst skref er að fá nemendur til að lýsa því hvernig þeir hugsuðu dæmið og þá kemur að Onenote. Sjálfur er ég með Microsoft Surface vél en hægt er að notast við hvaða spjaldtölvu sem er svo lengi sem hægt sé að spegla myndina við skjávarpa. Ég nota þá penna og skrifa sjálfur það sem nemendur segja mér og mín upplifun af því að gera þetta í Onenote fremur en á töfluna er að ég næ mun betra sambandi við nemendur. Nemendur taka betur eftir þegar ég er ekki að þvælast fyrir og svo er líka auðvelt að rétta nemendum tölvuna ef þeir eiga erfitt með munnlega tjáningu svo þeir geti skrifað sjálfir. Annar kostur við Onenote í þessari vinnu er að ef ég vil eiga útreikninga og hugmyndir nemenda áfram þá sleppi ég því bara að stroka út og allt verður eftir í Onenote.
2. Fyrirmæli og upplýsingar til nemenda
Við notum Onenote Class Notebook mikið þegar kemur að því að dreifa fyrirmælum og upplýsingum til nemenda. Oft vörpum við fyrirmælum á tjaldið gegnum skjávarpa fyrir allan bekkinn, förum yfir þau og svo hefjast nemendur handa við lausnina. Í því skólaumhverfi sem við kennum í dag er líklegt að margir ef ekki allir hóparnir þurfi að yfirgefa stofuna í heimildarvinnu, myndbandavinnu eða annað því um líkt. Með því að hafa fyrirmælin á Onenote Class Notebook hafa þessir nemendur aðgang að þeim upplýsingum í símanum sínum og ég þarf ekki lengur að prenta fyrirmælin út eða ganga um skólann og endurtaka fyrirmælin fyrir ákveðna hópa.
3. Lýðræðisleg umræða og samvinnusvæði allra
Í Onenote Class Notebook er svæði sem heitir Collaboration space (íslenskun á forritinu kemur vonandi fljótlega) þar sem allir kennarar bekkjarins sem og nemendur geta unnið á. Þetta svæði hentar vel fyrir umræður um námsefnið og þá fá þeir nemendur sem eiga erfitt með að tjá sig munnlega í hefðbundinni bekkjarkennslu tækifæri á að láta ljós sitt skína. Einnig hef ég notað þetta svæði til að kenna lýðræðislega hugsun og má þá t.d. nefna dæmi um það þegar við semjum bekkjarreglurnar. Nemendur fá þá eina viku til að skrifa sínar hugmyndir (sem birtast allar undir nafni) um bekkjarreglur sem við ræðum svo saman sem hópur og kjósum lýðræðislega um hverjar komast á endanlegan lista.
4. Heimanám
Mikil umræða hefur verið í þjóðfélaginu síðustu mánuði um heimanám. Ég ætla ekki að fara djúpt í þær umræður hér nema hvað mín hugmyndafræði varðandi heimanám er að það verður að vera markmið með heimanámi, það þarf að vera skemmtilegt og eitthvað sem nemendur geta gert án þess að foreldrar þurfi að berjast við að hjálpa og kenna börnunum sínum. Hér kemur upplýsingatæknin sterk inn fyrir kennara. Onenote býður upp á „embed videos“ eða að fella inn myndbönd beint á skjalið. Það gerir okkur kennurum kleift að setja spegluðu kennsluna gegnum, Onenote Class Notebook, inn á blað, jafnvel mörg myndbönd saman og spurningar eða dæmi þar við hlið. Nemendur þurfa þá ekki að elta mismunandi tengla hingað og þangað um youtube eða annað til að finna myndböndin. Allt efnið og verkefnið er á sama stað og um leið og nemendur vinna efnið vistast það sjálfkrafa svo það þarf í raun ekki að skila verkefninu. Kennarinn getur svo farið yfir á síðunni sjálfri og nemendur fengið endurgjöf um leið og kennarin vinnur leiðsagnarmatið.
Þessar vikurnar erum við í Grunnskólanum í Þorlákshöfn með lestrarátak í gangi. Kennarar undir stjórn frábærra sérkennara og sérkennslustjóra hafa unnið hörðum höndum að lestraráætlun, notast við nýja lestrarkvarða og leitað leiða við fjölbreyttar aðferðir við lestrarkennslu. Nú nýlega fékk ég þá hugmynd að láta nemendur vinna viku heimaverkefni í lestri þar sem þau taka upp video-blogg eða myndband af sjálfum sér lesa upphátt í fimm mínútur á dag fimm daga vikunnar. Skilin eru svo auðveld þar sem þau setja myndböndin sín inn á síðu sem ég hef þegar deilt á þau öll. Þegar myndböndin eru komin þar inn þarf ekkert að skila og enginn getur séð myndböndin nema ég og nemandinn sjálfur. Uppbrot sem þetta hefur vakið mikla lukku meðal nemenda og það verður gaman að halda áfram að þróa álíka verkefni.
5. Skipulag nemenda sjálfra
Með Onenote Class Notebook eiga allir nemendur sitt svæði. Þar geta þeir búið til sínar eigin möppur og blaðsíður og haldið utan um alla sína vinnu. Við þekkjum öll þá nemendur (held að ég hafi sjálfur verið sá nemandi) sem finna aldrei blöðin sín. Þau gleymdust heima, týndust í skólanum, hundurinn pissaði á þau eða aðrar frábærar útskýringar sem við höfum öll heyrt. Nú getum við skapað þessum nemendum einfalt og þægilegt umhverfi þar sem aldrei þarf að vista og öll gögn sem þú vinnur eru alltaf á sínum stað um ókomna tíð.
Nemendur mínir leita meira og meira sjálfir í að vinna allskyns verkefni í Onenote að eigin frumkvæði og eru um leið að verða þróandi aðilar að kerfinu þar sem þau sækja oft í lausnir sem eru ekki í boði og þá get ég, eða þau sjálf, komið skilaboðum til Onenote teymisins hjá Microsoft um umbætur og lausnir á kerfinu.
Microsoft Classroom
[caption id="attachment_415" align="alignleft" width="404"] Dæmi um verkefni sem stofnað er í Classroom og yfirsýn kennara.[/caption]
Það nýjasta sem Microsoft kynnti fyrir okkur er Microsoft Classroom sem er eins og stendur í tilraunaham. Kerfið talar við Onenote Class Notebook á frekar einfaldan máta og það er einmitt einfaldleikinn sem heillar mig við þetta kerfi. Ég set upp ákveðinn áfanga í bekk s.s. samfélagsfræði 8. bekkur og vel nemendur og samkennara beint úr póstkerfinu hjá okkur. Um leið get ég búið til Onenote Class Notebook fyrir bekkinn sem talar þá við Microsoft Classroom. Að því loknu get ég útbúið verkefni eins og t.d. ritgerð um Iðnbyltinguna, sett inn lýsingu og skiladag og sent á alla nemendur. Nemandinn fær þá tilkynningu í tölvupósti og við fáum öll áminningu í dagatalið okkar með skiladagsetningu. Nemendur fara þá inn í Microsoft Classroom og geta þar annað hvort hlaðið upp skjali sem þeir hafa þegar stofnað eða stofnað verkefnið (t.d. word skjal) beint inn í Classroom. Skjalið er þá vistað þar inni allan tímann og nemendur geta unnið í því hvar sem er í heiminum að því gefnu að þeir hafi nettengingu. Þegar verkefnið er tilbúið smella þeir á skilatakkann og kennarinn fær það inn á sitt svæði. Þetta auðveldar kennaranum mikið utanumhald verkefna. Engar útprentaðar ritgerðir, engin viðhengi í tölvupósti sem ég þarf að færa á milli mappa, engin deild skjöl sem ég þarf að halda utan um. Ritgerðir nemenda birtast í lista með nöfnunum þeirra. Þar getur kennarinn valið ákveðinn nemanda og opnað skjalið hans. Þá er hægt að fara yfir t.d. með því að skrifa umsagnir beint í Word, leiðrétta með leiðréttingarkerfi Word, skrifa umsögn á Classroom svæðið, skrifa umsögn beint í Onenote nemandans með því að smella á einn hnapp eða gefa nemanda einkunn (því miður eingöngu í 0 – 100 stigum). Sjálfur notaði ég Microsoft Classroom m.a. í ritgerð um Iðnbyltinguna í 8. bekk og það hefur aldrei verið jafn auðvelt að halda utan um og fara yfir ritgerðir nemenda.
Mystery Skype og Mystery Number Skype
Áhugi erlendra kennara á Íslandi er mikill og marga sem langar að tengjast íslenskum kennurum til samstarfs. Við höfum möguleika á spennandi verkefnum í tengslum við Nordplus og Erasmus/etwinning en auk þess er hægt að vinna með kennurum í öðrum löndum í gegnum Skype. Fjölmargir kennarar á Íslandi hafa á síðustu misserum tekið þátt í Mystery Skype verkefnum með öðrum kennurum sem eru ýmist staddir hér á landi eða erlendis. Mystery Skype er kennsluaðferð sem þjálfar nemendur í samvinnu, rökhugsun, ensku, landafræði, tjáningu, samskiptum og gengur út á það að nemendur reynda, í sameiningu, að komast að því hvar hinn bekkurinn er staðsettur með því að spyrja já/nei spurninga. Venjan er að nemendur þyrstir í að kynna sér meira um landið/bæinn sem þau voru að kynnast og spyrja iðulega hvenær planið sé að fara næst í Mystery Skype.
Fyrir kennarar sem hafa áhuga á því að komast í samband við kennara á Íslandi er búið að stofna Facebook-hóp þar sem hægt er að óska eftir því að komast í samband við kennara.
Auk þess er Facebook-hópur fyrir þá sem vilja komast í samband við erlenda kennara og síða þar sem kennarar skrá sig til að láta aðra vita af því að þeir hafi áhuga á því að spila Mystery Skype
Mystery Number Skype
Aldur þarf ekki að vera fyrirstaða þegar kemur að Mystery Skype og nú hafa nokkrir frjóir kennarar búið til leik sem kallast Mystery Number Skype. Það getur verið flókið fyrir unga nemendur að átta sig á því hvar þeir búa en flestir þeirra þekkja tölur og geta svarað spurningum sem tengjast þeim. Mystery Number Skype hefur sömu markmið og Mystery Skype nema það að nú giska nemendur á tölu sem hinn bekkurinn er búinn að ákveða í sameiningu. Eins og í Mystery Skype að þá spyrja nemendur já og nei spurninga til þess að útiloka tölur og fikra sig nær þeirri réttu.
Mystery Number Skype hentar vel fyrir yngstu nemendur okkar, bæði í grunn- og leikskóla. Nemendur læra:
hver á sínum hraða og búa til spurningar í sameiningu til að útiloka tölur þ.a. þau komist að því hver sé tala hinna krakkana
að nemendur annars staðar á landinu eða í öðrum löndum eru að læra um nákvæmlega sama hlutinn og þau.
að hægt er að nota tæknina til að hjálpa til við lærdóm.