Note
Access to this page requires authorization. You can try signing in or changing directories.
Access to this page requires authorization. You can try changing directories.
Við förum ekkert ofan af því að Onenote er eitt öflugasta verkfæri sem kennarar geta notað með sínum nemendum. Fiona Beal, kennari og rithöfundur í Suður-Afríku, skrifaði áhugaverða grein þar sem hún tiltekur 10 árangursríkar leiðir fyrir kennara til að nota Onenote í kennslu. Við hvetjum ykkur til þess að lesa greinina, skoða myndböndin sem þar er að finna og prófa þá hluti sem hún tiltekur, hér verður stiklað á stóru.
Hún, eins og fleiri, mælir með því að kennarar noti Onenote 2016 sem er langbesta útgáfan af Onenote. Hún mælir einnig með því að kennarar:
- geri to-do lista fyrir daginn og/eða vikuna
- setji liti á síður og jafnvel línur ef þess þarf
- setji inn skjöl, ýmist sem viðhengi eða 'print-out'
- tileinki sér 'digital inking' með því að skrifa beint á skjáinn
- haldi utan um greinar og vefsíður
- noti Onenote clipper
- tileinki sér notkun sniðmáta (e: template)
- tali inn minnispunkta með því að taka upp hljóð
- taki upp myndbönd og geymi í Onenote
- setji upp og haldi utan um kennsluáætlanir