Deila með


Uppsetning á POP- eða IMAP-tölvupósti á Tilt

 

Á við: Office 365 for professionals and small businesses, Office 365 for enterprises, Microsoft Exchange, Live@edu

Efni síðast breytt: 2014-08-20

Þú getur sett upp tölvupóst á Windows Mobile 6.5.

Hvernig set ég upp POP eða IMAP tölvupóst á Windows Phone 6.5?

  1. Bankaðu á Byrja > Skilaboð > Setja upp tölvupóst.

  2. Færðu inn netfangið þitt og aðgangsorð og bankaðu síðan á Áfram.

  3. Hreinsaðu gátreitinn Reyna að fá tölvupóststillingar sjálfkrafa af netinu og bankaðu síðan á áfram.

  4. Veldu Netpóstur í Tölvupóstveitan þín og bankaðu síðan á Áfram.

  5. Færðu inn nafnið þitt (t.d. Tony Smith) og breyttu Reikningsheiti til birtingar), ef þarf og bankaðu síðan á Áfram.

  6. Færðu inn Þjón fyrir aðsendan póst). Upplýsingar um hvernig á að finna heiti þjónsins fyrir aðsendan póst (POP3 eða IMAP) er að finna undir hlutanum „Hvað annað er gott að hafa í huga?“ hér fyrir neðan.

  7. Veldu Reikningsgerð (annað hvort POP3 eða IMAP4) og bankaðu síðan á Áfram.

  8. Færðu inn notandanafn þitt (til dæmis tony@contoso.com) og bankaðu síðan á Áfram. Aðgangsorð þitt ætti þegar að vera fært inn í 2. þrepi.

  9. Færðu inn heiti þjóns fyrir sendan póst (SMTP) í Outgoing (SMTP) mail server. Upplýsingar hér að neðan segja til um hvernig á að finna heiti þjónsins fyrir sendan póst (SMTP).

  10. Veldu gátreit merktan Þjónn fyrir útsendan póst þarfnast sannvottunar og fullvissaðu þig um að merkt sé í gátreitinn Nota sama notandanafn og aðgangsorð til þess að senda póst.

  11. Veldu hversu oft þú vilt að farsíminn athugi hvort ný skeyti hafi borist. Ef þú vilt ekki að farsíminn athugi tölvupóstinn velurðu Handvirkt.

  12. Bankaðu á Ljúka.

Hvað annað er gott að hafa í huga?

  • Þú þarft að skoða eigin POP3-, IMAP4- og SMTP-þjónsstillingar áður en þú getur sett upp POP3- eða IMAP4-tölvupóstforrit.

    Horfðu á þetta myndskeið til að læra hvernig hægt er að finna þjónsstillingar fyrir POP- eða IMAP-tölvupóstforrit.

    4873755a-8b1e-497e-bc54-101d1e75d3e7

    Skráðu þig inn í tölvupóstreikninginn með Outlook Web App til að finna þjónsstillingarnar. Þegar þú hefur skráð þig inn skaltu smella á Valkostir > Skoða alla valkosti > Reikningur > Reikningurinn minn > Stillingar fyrir POP-, IMAP- og SMTP-aðgang. Netþjónanöfnin POP3, IMAP4 og SMTP og aðrar stillingar sem þú kannt að þarfnast eru tilgreindar á síðunni **Samskiptareglustillingar **,undir POP-stilling , IMAP-stilling og SMTP-stilling.

    Ath.   Ef það stendur Ekki tiltækt hjá POP-stillingu, IMAP-stillingu og SMTP-stillingu kann að vera að notkun á POP eða IMAP-tölvupóstforritum sé ekki uppsett á reikningnum þínum. Frekari upplýsingar er að finna hjá þeim aðila sem hefur umsjón með tölvupóstreikningum þínum.

  • Ef tölvupóstreikningurinn þinn er af þeirri gerð sem krefst skráningar þarftu að skrá hann í fyrsta skiptið sem þú skráir þig inn í Outlook Web App. Tenging við tölvupóstreikninginn þinn gegnum farsíma mun mistakast ef þú hefur ekki skráð reikninginn þinn með Outlook Web App. Þegar þú hefur skráð þig inn skaltu skrá þig út. Reyndu síðan að tengjast með farsímanum þínum. Til að fá frekari upplýsingar um hvernig á að skrá sig inn á reikninginn þinn með Outlook Web App, sjá Hvernig á að skrá sig inn í tölvupóstinn með því að nota vafra. Ef þú átt í erfiðleikum með innskráningu, sjáAlgengar spurningar: Vandamál með innskráningu og aðgangsorð eða hafðu samband við aðilann sem stjórnar tölvupóstreikningnum þínum.

  • Ef þú getur ekki sent skeyti úr Windows farsímanum þínum með POP3 eða IMAP4 en getur tekið á móti skeytum, er hugsanlegt að uppsetning á tölvupósti í Windows farsímanum þínum sé ekki rétt. Hægt er að laga þetta með því að sækja og setja upp Windows Mobile 6.1 Hotfix (skyndihjálp) til að senda POP- og IMAP-tölvupóst. Smelltu á eftirfarandi tengil til að sækja skyndihjálpina.