Deila með


Kveikja á skráningu fyrir reikning í Outlook

 

Á við: Office 365 for professionals and small businesses, Office 365 for enterprises, Microsoft Exchange, Live@edu

Efni síðast breytt: 2012-11-01

Ef þú opnar tölvupóstinn þinn með því að nota Outlook og upp koma vandamál í tengingu gætir þú kveikt á skráningu. Þegar þú gerir skráningu virka eru upplýsingar um vandamál í tengingu sem koma upp hjá þér skráðar sjálfkrafa í annálaskrá. Þetta er gagnlegt þar sem hægt er að senda þessar upplýsingar til þjónustuborðs.

Ef þér tókst að búa til Outlook forstillingu, geturðu kveikt á skráningu með forritinu Outlook. Ef þú gast ekki búið til Outlook forstillingu gætirðu e.t.v. kveikt á skráningu með því að breyta Windows stýriskránni.

Til að kveikja á skráningu með Outlook 2007 skaltu fylgja leiðbeiningum í grein 831053 í þekkingargrunni Microsoft, Hvernig á að kveikja á valkostinum Gera skráningu tölvupósts virka fyrir úrræðaleit í Outlook 2003, Outlook 2007 og Outlook 2010.

Hvar finn ég frekari upplýsingar?